allt er á tjá og tundri... get ei fötin min fundið....

þriðjudagur, apríl 26, 2005

sól, sól skín á mig

Sumarið er komið, búið að reka okkur af vistinni, þurfum að fara út næstu helgi. En við reynum að horfa á björtu hliðina í þessu öllu :P

  • Kjúklingabringur á 40% afslætti í Nettó, getum eldað þær sjálfar!
  • Getum alltaf eldað sjálfar, þurfum ekki að borða þennan helv**** fangelsismat og eiga í hættu á að fá matareitrun!
  • Getum haldið matarboð, grillað ofan í liðið :P
  • Getum drukkið eins og við viljum, gerst feitir alkóhólistar án þess að nokkur geti skipt sér af!
  • Getum haldið partý!
  • Getum blastað tónlistina okkar...kannski :P
  • Getum fengið okkur Stöð 2
  • Kannski fengið okkur gæludýr, hund :)
  • Enginn Simmi
  • Getum farið úldnar í mat, neiiii...við erum aldrei úldnar, hehe
  • Ef við náum að redda okkur þvottavél þá minnka ekki fötin okkar alltaf
  • Og verður heldur ekki stolið af einhverjum fávitum (Zwergwal waschküche dieb)
  • Getum leyft strákum að gista án þess að þurfa leyfi frá foreldrum
  • Megum fá fólk í heimsókn eftir klukkan 8 um helgar
  • Getum haldið hljómsveitaræfingar heima (luft-hljómsveitin góða)
  • Þurfum ekki að horfa á hlussu VMA píur í magabolum
  • Vöknum ekki um miðjar nætur við þjófa- og brunavarnarkerfi
  • Getum stolið skóbursta án þess að Simmi taki hann af okkur!
  • Við getum downloadað nýjustu þáttunum af One tree hill og O.C.
  • Engin herbergisskoðun
  • Vöknum ekki við ryksugur kl.9 á morgnana ef við sofum “óvart” yfir okkur
  • Getum opnað glugga almennilega
  • Þurfum ekki að fara alltaf heim í fríum (ef það er kannski eitthvað skemmtó að ske hér)
  • Þurfum ekki að fara á leiðinlega vistarfundi!! (haha, höfum að vísu aldrei mætt á neinn fund)
  • Fáum fréttablaðið heim til okkar!:)
  • Engin stelur póstinum okkar! (Ekki að það hafi samt einhverntímann gerst :P... eða jú kannski? Maður veit ekki?)

Afhverju rak hann okkur ekki fyrr?? Erum búnar að vera að bíða eftir honum uppí herbergi hverja einustu helgi síðan við byrjuðum í 2.bekk! hehe...


Ps. Vorum að skella inn sjóðheitri kvittibók og svellkaldri skoðunakönnun ;) endilega látið ljós ykkar skína!

2 Comments:

At 27 apríl, 2005 21:22, Anonymous Nafnlaus said...

Heyrðu ég er alveg sammála þessu með lufthljómsveitina.. ég man samt ekki alveg hvað ég var að spila á en ég veit allaveg að ég vil æfingu sko..

 
At 30 apríl, 2005 15:06, Anonymous Nafnlaus said...

Stelpur þið eruð æðislegar :). Verðið að halda innfluttnings party og bjóða mér ;). veriði svo stiltar heehe...:D

 

Skrifa ummæli

<< Home