allt er á tjá og tundri... get ei fötin min fundið....

föstudagur, september 02, 2005

Svava ein í heiminum

ÉG HITTI RAKEL MÍNA Í GÆR :) ! Hún var á leiðinni uppá flugvöll blessunin en ég var á leiðinni til Reykjavíkur á sama tíma svo við þurftum að stoppa á Reykjanesbrautinni til þess að hittast, æj hvað var æðislegt að hitta þessa elsku. Hún og Guðrún vinkona hennar fóru til Danmerkur í gær og eiga eflaust eftir að skemmta sér vel og sletta ærlega úr klaufunum ef ég þekki Rakel rétt! hehe, ég lánaði henni myndavélina mína svo kannski koma myndir inná netið seinna!
Ég á að vera að vinna núna en er heima lasin. Great. Ljósanótt er þessa helgi en ég á eflaust ekki eftir að gera mikið. Fer örugglega bara í vinnuna á morgun og hinn svo á að reyna að skella sér norður á Akureyri á sunnudaginn eftir vinnu eða mánudagsmorguninn! Ætla að fara með e-ð smá af dóti í íbúðina okkar!
En vá, leiðinlegt blogg!
Ég ætla að athuga hvenær stelpurnar eru búnar í skólanum og kíkka hvort þær vilji kannski kíkja í heimsókn til mín! Sunna og Bryndís eru nefnilega loksins komnar heim frá Spáni :D gleði gleði!

Kv.Svava

Image hosted by Photobucket.com

Ps. fór í bíó í rvk í gær og sá engan annan en Lalla Johns! Smellti af honum mynd með símanum mínum! Haha, sést reyndar ekkert alltof vel þar sem við vorum inn í bíl þegar við tókum myndina, en hann er þessi sem stendur á myndinni!

föstudagur, ágúst 26, 2005

Látið mig í friði!

Þegar ég er á Akureyri þá ofsækir Steypustöðin á Dalvík mig en núna hérna heima er ég byrjuð að fá upphringingar frá Ofnasmiðju Suðurnesja! Ef þið eruð að lesa þetta vil ég skila því til ykkar sem reka þessa fyrirtæki að hætta að hringja í mig! Ég er með vinnu eins og er...
En kannski ég fari bara að vinna hjá steypustöðinni með skóla í haust?

15.janúar 2000
Sunna og Eydís eru með strákum út í Vestmanneyjum. Sunna er með strák sem heitir Daði en Eydís er með strák sem heitir Kræsorn Saitong hann er tælendingur en er bara kallaður Bonni.

24.janúar 2000
Daði og Bonni eru hættir með stelpunum en Sunna er byrjuð með einhverjum Smára.
(Svo stóð eitthvað meira...)

Voðalega skeðu hlutirnir eitthvað hratt þarna í gamla daga :P
Anyways...ég ætla að fara að hitta hana Höllu mína og fara að gera eitthvað skemmtilegt, have a nice weekend everyone...
Kv. Svava

þriðjudagur, ágúst 23, 2005

Svava ofur-bloggari!

hey beibs... ég er eitthvað búin að vera svo einmana í dag svo ég ákvað að blogga smá núna. Sunna, Bryndís, Héðinn og Óli eru öll útá Spáni og Halla er að vinna. Ég var eitthvað að laga til í herberginu mínu í dag og rakst á gamlar dagbækur, ég var reyndar aldrei dugleg að skrifa í dagbók þegar ég var yngri en það kom þó fyrir og það er vægast sagt gaman að lesa þetta núna. Hér ætla ég að deila einum degi eða svo með ykkur:

22.maí 2000 (13 ára)
Bryndís og ég fórum út í keflavík í dag af því að ég þurfti að fara til Tanna ég og Bryndís misstum tvisvar af strætónum þegar við vorum í keflavík svo við fórum bara í bókabúðina, hljómval, K-Sport og stapafell eitthvað að skoða, svo bað Bryndís mig um að hringja í Daða og segja honum að hún væri hætt með honum, ég þorði því ekki og við hittum Ingu Ósk og báðum hana bara um að hringja í hann. Grímur og Róbert komu til mín 20.maí og þá var Bryndís að gista hjá mér klukkan var 23 þegar þeir komu og 03 þegar þeir fóru það var þvílíkt stuð og þá fór ég í fyrsta sinn í sleik. Fyrst að Bryndís er hætt með Daða spurðum við Grím um að byrja með henni og hann sagði:kannski. Ég er að fara í dönskupróf á morgun og kl. núna er 23:46 svo ég þarf að fara að sofa.
Góða nótt - God nat.

Hahaha, það var svo fyndið hvernig þetta var einu sinni, svona viltu byrja með mér stemmning og láta aðra dömpa fyrir sig! Asnalegt. Og by the way, þá skrifaði ég þetta upp alveg eins og þetta var í dagbókinni minni þess vegna eru hlutirnir kannski asnalega orðaðir og lítið um punkta!
Allavegana, nóg í bili. Kannski ég gleðji Rakel og komi með annað blogg einhvern tímann seinna í sumar :)
Kv. Svava

miðvikudagur, ágúst 03, 2005

hæ sæti viltu leika...

hæbbz..... ætla ekki allir á menningarnótt?:P mig langar so! og so ljósanótt að heimsækja svövuna ;) en svava þar sem eg kann það ekki langar mig að biðja þig að henda úreltu skoðannakönnuninni okkkar út:P en stelpur va hvað eg hlakka til að farað leigja!!! það verður so gaman:) en langaði bara að skrifa smá þessa síða er alveg að rotna hjá okkur hehe:P en já ég og 3 aðrar stelpur að vestan erum komnar með nýja síðu.. :blog.central.is/eðalperlurnar held eg það se.. æji annaz er linkur af minni siðu nenni ekki að tékka.. allir að kikja og kvitta ;) bless i bili .. sakna ykkar svava og hanna!:(
kv.Rakel

föstudagur, júlí 15, 2005

Bonjour :)

hæhæ, ég er núna að skrifa frá Montréal, Québec. Ég og Íris komum hingað á sunnudaginn. Byrjuðum á því að fljúga til Boston en útaf því að það var svo mikil seinkun á fluginu okkar heima þurftum við að hlaupa til að reyna að ná flugvélinni til Montréal, þetta var síðasta flugið um kvöldið og ef við hefðum ekki náð því hefðum við þurft að vera yfir nótt í Boston! Við komum of seint og það var búið að loka hliðinu og vopnaleitinni og öllu því en af því að við erum svo æðislegar var þetta allt opnað aftur, bara fyrir okkur tvær!
Við komumst loksins til Montréal og þar voru mamma og Stefán Freyr á flugvellinum að ná í okkur! Svo eftir það er bara búið að vera smá sólbað hjá okkur og smá shopping, fórum líka á miðvikudaginn í smá rölt um miðbæinn, kíktum í China Town og fórum á rúntinn um gamla bæinn í hestakerru!
Í dag vöknuðum við svo frekar seint og fórum út á svalir í sólbað. Það var samt svo rosalega heitt að ég og Íris ákváðum að fara í smá hjólatúr og skella okkur í sund. En þegar í sundlaugina var komið var okkur sagt það að það væri skylda að vera með sundhettu í sundlauginni! Við vorum ekki lengi að snúa við og fara aftur heim! En á leiðinni heim ákváðum við að fara bara samt í sund, keyptum okkur sundhettu á staðnum og vorum ofursvalar! Skelli inn myndum seinna! haha...
Bæjó :*

miðvikudagur, júlí 06, 2005

verslunarmannahelgin nálgast!!

hæjhæj smá forvitni i gangi herna... hverjir ætla að djamma á akureyri um versló??:)
eða er eyjar málið..?
p.s svava það er bannað að vera að vinna!!! missjú;*
kv.Rakel....:)

miðvikudagur, júní 29, 2005

Hæ Rakel :)

vinna, vinna, vinna... búin að gera lítið annað núna í sumar"fríinu" þess vegna hef ég ekki nennt að skrifa neitt skemmtilegt hér inná, og það verður heldur engin breyting þar á núna.
Haha, bless. Farin að sofa, góða nótt.
-Svava

Ps. vill einhver kaupa snoop dogg miðann minn? ég er beiler...