allt er á tjá og tundri... get ei fötin min fundið....

fimmtudagur, maí 05, 2005

Partý in da hause

Sælar...
Það var djamm í gær. Við stelpurnar byrjuðum á því að mæta fullar á fótboltaleik í boganum, rosa íþróttamannslegar með lite bjór, en við mættum þó! Rakel náði að afreka það að labba á eitthvað stórt rör eða staur. Flott á því. Svo þegar leikurinn var búinn (skulum ekkert vera að fara út í það hvernig hann fór, er það nokkuð strákar?) fórum við bara í íbúðina okkar og strákarnir kíktu svo á okkur þegar þeir voru búnir að fara í sturtu og svoleiðis.
Svo kom eitthvað lið hingað, var svona smá partý. Einhverjir dúddar sem voru hérna löbbuðu út á bryggju, stálu bát og sigldu aðeins út á honum! Sniðugir.

Hetjur kvöldsins: Jónas, Friðgeir, Lilja Minný og Bjarni

Athyglisvert að sjá hversu margir eiga tvítóla mömmu. En samkvæmt könnuninni sem við vorum með hafa 44% af þeim sem skoða síðuna okkar drukkið einu sinni eða tvisvar á vistinni en 25% eiga tvítóla mömmu. Skrýtið.

Svava og Rakel

Ps. Kristbjörg? Á ekkert að fara að kíkja í heimsókn?

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home