Svava ein í heiminum
ÉG HITTI RAKEL MÍNA Í GÆR :) ! Hún var á leiðinni uppá flugvöll blessunin en ég var á leiðinni til Reykjavíkur á sama tíma svo við þurftum að stoppa á Reykjanesbrautinni til þess að hittast, æj hvað var æðislegt að hitta þessa elsku. Hún og Guðrún vinkona hennar fóru til Danmerkur í gær og eiga eflaust eftir að skemmta sér vel og sletta ærlega úr klaufunum ef ég þekki Rakel rétt! hehe, ég lánaði henni myndavélina mína svo kannski koma myndir inná netið seinna!
Ég á að vera að vinna núna en er heima lasin. Great. Ljósanótt er þessa helgi en ég á eflaust ekki eftir að gera mikið. Fer örugglega bara í vinnuna á morgun og hinn svo á að reyna að skella sér norður á Akureyri á sunnudaginn eftir vinnu eða mánudagsmorguninn! Ætla að fara með e-ð smá af dóti í íbúðina okkar!
En vá, leiðinlegt blogg!
Ég ætla að athuga hvenær stelpurnar eru búnar í skólanum og kíkka hvort þær vilji kannski kíkja í heimsókn til mín! Sunna og Bryndís eru nefnilega loksins komnar heim frá Spáni :D gleði gleði!
Kv.Svava

Ps. fór í bíó í rvk í gær og sá engan annan en Lalla Johns! Smellti af honum mynd með símanum mínum! Haha, sést reyndar ekkert alltof vel þar sem við vorum inn í bíl þegar við tókum myndina, en hann er þessi sem stendur á myndinni!