allt er á tjá og tundri... get ei fötin min fundið....

föstudagur, júlí 15, 2005

Bonjour :)

hæhæ, ég er núna að skrifa frá Montréal, Québec. Ég og Íris komum hingað á sunnudaginn. Byrjuðum á því að fljúga til Boston en útaf því að það var svo mikil seinkun á fluginu okkar heima þurftum við að hlaupa til að reyna að ná flugvélinni til Montréal, þetta var síðasta flugið um kvöldið og ef við hefðum ekki náð því hefðum við þurft að vera yfir nótt í Boston! Við komum of seint og það var búið að loka hliðinu og vopnaleitinni og öllu því en af því að við erum svo æðislegar var þetta allt opnað aftur, bara fyrir okkur tvær!
Við komumst loksins til Montréal og þar voru mamma og Stefán Freyr á flugvellinum að ná í okkur! Svo eftir það er bara búið að vera smá sólbað hjá okkur og smá shopping, fórum líka á miðvikudaginn í smá rölt um miðbæinn, kíktum í China Town og fórum á rúntinn um gamla bæinn í hestakerru!
Í dag vöknuðum við svo frekar seint og fórum út á svalir í sólbað. Það var samt svo rosalega heitt að ég og Íris ákváðum að fara í smá hjólatúr og skella okkur í sund. En þegar í sundlaugina var komið var okkur sagt það að það væri skylda að vera með sundhettu í sundlauginni! Við vorum ekki lengi að snúa við og fara aftur heim! En á leiðinni heim ákváðum við að fara bara samt í sund, keyptum okkur sundhettu á staðnum og vorum ofursvalar! Skelli inn myndum seinna! haha...
Bæjó :*

10 Comments:

At 16 júlí, 2005 18:06, Anonymous Nafnlaus said...

HAHAHAHA... sé þig engan vegin fyrir mér með sundhettu... hvað þá Írisi??? Hehehe... :D
Ég er að fara að hitta Eydísi.. liggaliggalái

 
At 18 júlí, 2005 21:44, Anonymous Nafnlaus said...

Hæ Svava mín! Ég sakna þín :(
Herru ég keypti mér alveg eins buxur og þú átt :/ sorry þetta voru bara einu buxurnar sem mig langaði í, við verðum bara að hringjast á +sðuren við förum í skólan¨
En herru nennuru nokkuð að kaupa handa mér RISA stóran M&M poka í fríhöfninni?? Mig langar svo í! É legg bara inn á þig þegar þú kemur heim :)
Elska þig :*

 
At 18 júlí, 2005 22:33, Anonymous Nafnlaus said...

oh ég sakna þin so mikið vantaði þig alveg i teitið hja sunnu:S en snoop var æði ;) en vá ég VERÐ að fá að sja mynd af þer með sundhettu svava!!!!! heh:P missjú sæta min;*;*;*;*

 
At 20 júlí, 2005 16:39, Anonymous Nafnlaus said...

Hæ elsku Svava mín. Ég sakna þín mikið MIKIÐ!!! Drífðu þig í heimsókn til mín.....en skemmtu þér vel....love you :*

 
At 25 júlí, 2005 12:45, Anonymous Nafnlaus said...

Gaman að heyra hvað þú ert að bralla sykur.. vonandi náum við að hittast eitthvað áður en við byrjum í skólanum því hver veit nema þið eigið ekki efti að þekkja mig þegar við mætum í skólan ;)
Lov jú.. :*

 
At 25 júlí, 2005 21:44, Anonymous Nafnlaus said...

Við gleymum þér nú ekki svona auðveldlega Kristbjörg mín :)

 
At 25 júlí, 2005 21:57, Anonymous Nafnlaus said...

ætlarðu að lita á þér hárið dökkt, klippa það stutt, fá þér sílikon og kalla þig Ella?? :P

 
At 26 júlí, 2005 00:35, Anonymous Nafnlaus said...

hver er elli?:o og kristbjörg hvað meinaru?

 
At 26 júlí, 2005 21:40, Anonymous Nafnlaus said...

HAHAHAHA! Elli? Koktelssósa? Ha, hver sagði þetta... ;)

 
At 28 júlí, 2005 23:22, Anonymous Nafnlaus said...

úpps...ég sagði þetta víst :P gleymdi að skrifa nafn...

 

Skrifa ummæli

<< Home