allt er á tjá og tundri... get ei fötin min fundið....

þriðjudagur, apríl 26, 2005

sól, sól skín á mig

Sumarið er komið, búið að reka okkur af vistinni, þurfum að fara út næstu helgi. En við reynum að horfa á björtu hliðina í þessu öllu :P

  • Kjúklingabringur á 40% afslætti í Nettó, getum eldað þær sjálfar!
  • Getum alltaf eldað sjálfar, þurfum ekki að borða þennan helv**** fangelsismat og eiga í hættu á að fá matareitrun!
  • Getum haldið matarboð, grillað ofan í liðið :P
  • Getum drukkið eins og við viljum, gerst feitir alkóhólistar án þess að nokkur geti skipt sér af!
  • Getum haldið partý!
  • Getum blastað tónlistina okkar...kannski :P
  • Getum fengið okkur Stöð 2
  • Kannski fengið okkur gæludýr, hund :)
  • Enginn Simmi
  • Getum farið úldnar í mat, neiiii...við erum aldrei úldnar, hehe
  • Ef við náum að redda okkur þvottavél þá minnka ekki fötin okkar alltaf
  • Og verður heldur ekki stolið af einhverjum fávitum (Zwergwal waschküche dieb)
  • Getum leyft strákum að gista án þess að þurfa leyfi frá foreldrum
  • Megum fá fólk í heimsókn eftir klukkan 8 um helgar
  • Getum haldið hljómsveitaræfingar heima (luft-hljómsveitin góða)
  • Þurfum ekki að horfa á hlussu VMA píur í magabolum
  • Vöknum ekki um miðjar nætur við þjófa- og brunavarnarkerfi
  • Getum stolið skóbursta án þess að Simmi taki hann af okkur!
  • Við getum downloadað nýjustu þáttunum af One tree hill og O.C.
  • Engin herbergisskoðun
  • Vöknum ekki við ryksugur kl.9 á morgnana ef við sofum “óvart” yfir okkur
  • Getum opnað glugga almennilega
  • Þurfum ekki að fara alltaf heim í fríum (ef það er kannski eitthvað skemmtó að ske hér)
  • Þurfum ekki að fara á leiðinlega vistarfundi!! (haha, höfum að vísu aldrei mætt á neinn fund)
  • Fáum fréttablaðið heim til okkar!:)
  • Engin stelur póstinum okkar! (Ekki að það hafi samt einhverntímann gerst :P... eða jú kannski? Maður veit ekki?)

Afhverju rak hann okkur ekki fyrr?? Erum búnar að vera að bíða eftir honum uppí herbergi hverja einustu helgi síðan við byrjuðum í 2.bekk! hehe...


Ps. Vorum að skella inn sjóðheitri kvittibók og svellkaldri skoðunakönnun ;) endilega látið ljós ykkar skína!

föstudagur, apríl 22, 2005

Köben

setti inn alveg bunka af myndum í gær! Myndir síðan í DK, föstudag, laugardag og sunnudag...
er nývöknuð...
-Svava

laugardagur, apríl 09, 2005

myndir, myndir, myndir

jei, ég er loksins búin að setja inn fleiri myndir síðan um síðustu helgi... ákvað að drífa það af því ég á örugglega eftir að taka fleiri myndir í kvöld! Þetta eru semsagt myndirnar síðan á HipHop djamminu á Dátanum og síðan í bekkjarpartýinu síðasta laugardag!

Vei

fimmtudagur, apríl 07, 2005

Flugupervert

Getur einhver bent mér á góðan flugnabana? Er að verða brjáluð á einni húsaflugu sem er búin að koma sér vel fyrir inná baðherbergi hjá mér! Hún er alltaf að bregða mér og er farin að elta mig útum allt, um daginn kom hún með mér í sturtu!

Bryndís mín á afmæli í dag, eða í gær? Er víst kominn núna 7.apríl. En til hamingju með daginn elskan :* ! Hún er mjög líklega einhversstaðar úti á fylleríi núna, stolt af stelpunni, hehe...

Annars vorum við stelpurnar að koma heim úr bíói, fórum á the pacifier. Ágæt mynd, væmin og svolítið ýkt á köflum en það er bara hægt að hlæja að því!

Ég ætla að fara sofa núna, góða nótt
-Svava

mánudagur, apríl 04, 2005

smá um das ferð...!:)

jæja mér fannst ekki hægt að sleppa þvi að skrifa smá um eina tilgangslausustu ferð sem sögur fara af... en við tókum okkur til föstudaginn 1 apríl og og skutluðum valey söru bekkjarsystur svövu á staðarskála!! jújú höfðum það lítið að gera.. en gerðum þetta bara að skemmtilegri ferð! komum við á síðu sem er staður sem afi svövu á .. tókum helling af myndum á leiðinni og fípluðumst eikkað:P komum svo við á víðigerði á leiðinni heim og fengum okkur að eta.. geðveikur staður sko þar var fólk í stuði allir haugafullir á djamminu!! svo fórum við á skagaströnd á leiðinni heim!! ætluðum að kikja á kántríbæ en neiiiiiii það var bara lokað?? bara opið á laugardögum or some... það sökkar!! en tókum samt mynd af honum og húsinu sem hallbjörn á heima í! bara frægar sko..! þetta verður endurtekið einhvern timann;) látið vita ef ykkur vantar skutl;p kannski ekki... en næst er það bara road trip til ísafjarðar... er einhver game?? :p allavega.. nú er komið að því að við verðum að velja nýja slóð á þessa síðu.. erum alveg að beila á djamminu ... farnar í pásu og læti.. og fórum meira að segja að hreyfa okkur áðan ... ! en nog i bili....
kv.Rakel

laugardagur, apríl 02, 2005

Myndir

nú er ég búin að setja inn myndir síðan á Dátanum á fimmtudaginn... klikkið bara hér...
Annars er það bara bekkjarpartý 2.H og 2.F á eftir..held samt það verði slöpp mæting hjá mínum bekk, svo er líka AK Extreme, maður horfir kannski eitthvað á það :)
ég er farin að gera eitthvað...
-Svava