allt er á tjá og tundri... get ei fötin min fundið....

þriðjudagur, ágúst 23, 2005

Svava ofur-bloggari!

hey beibs... ég er eitthvað búin að vera svo einmana í dag svo ég ákvað að blogga smá núna. Sunna, Bryndís, Héðinn og Óli eru öll útá Spáni og Halla er að vinna. Ég var eitthvað að laga til í herberginu mínu í dag og rakst á gamlar dagbækur, ég var reyndar aldrei dugleg að skrifa í dagbók þegar ég var yngri en það kom þó fyrir og það er vægast sagt gaman að lesa þetta núna. Hér ætla ég að deila einum degi eða svo með ykkur:

22.maí 2000 (13 ára)
Bryndís og ég fórum út í keflavík í dag af því að ég þurfti að fara til Tanna ég og Bryndís misstum tvisvar af strætónum þegar við vorum í keflavík svo við fórum bara í bókabúðina, hljómval, K-Sport og stapafell eitthvað að skoða, svo bað Bryndís mig um að hringja í Daða og segja honum að hún væri hætt með honum, ég þorði því ekki og við hittum Ingu Ósk og báðum hana bara um að hringja í hann. Grímur og Róbert komu til mín 20.maí og þá var Bryndís að gista hjá mér klukkan var 23 þegar þeir komu og 03 þegar þeir fóru það var þvílíkt stuð og þá fór ég í fyrsta sinn í sleik. Fyrst að Bryndís er hætt með Daða spurðum við Grím um að byrja með henni og hann sagði:kannski. Ég er að fara í dönskupróf á morgun og kl. núna er 23:46 svo ég þarf að fara að sofa.
Góða nótt - God nat.

Hahaha, það var svo fyndið hvernig þetta var einu sinni, svona viltu byrja með mér stemmning og láta aðra dömpa fyrir sig! Asnalegt. Og by the way, þá skrifaði ég þetta upp alveg eins og þetta var í dagbókinni minni þess vegna eru hlutirnir kannski asnalega orðaðir og lítið um punkta!
Allavegana, nóg í bili. Kannski ég gleðji Rakel og komi með annað blogg einhvern tímann seinna í sumar :)
Kv. Svava

4 Comments:

At 23 ágúst, 2005 20:28, Anonymous Nafnlaus said...

Hahahahah fyrsti sleikinn!!! :Þ

 
At 23 ágúst, 2005 20:50, Anonymous Nafnlaus said...

hahaha! svo asnalegt!

 
At 23 ágúst, 2005 23:42, Anonymous Nafnlaus said...

Vá, hvað þetta er fyndið hanskinn minn :D hehehe.. !!! :)

 
At 24 ágúst, 2005 23:07, Anonymous Nafnlaus said...

bwahahaha!! schnilld:P

 

Skrifa ummæli

<< Home