allt er á tjá og tundri... get ei fötin min fundið....

föstudagur, júlí 15, 2005

Bonjour :)

hæhæ, ég er núna að skrifa frá Montréal, Québec. Ég og Íris komum hingað á sunnudaginn. Byrjuðum á því að fljúga til Boston en útaf því að það var svo mikil seinkun á fluginu okkar heima þurftum við að hlaupa til að reyna að ná flugvélinni til Montréal, þetta var síðasta flugið um kvöldið og ef við hefðum ekki náð því hefðum við þurft að vera yfir nótt í Boston! Við komum of seint og það var búið að loka hliðinu og vopnaleitinni og öllu því en af því að við erum svo æðislegar var þetta allt opnað aftur, bara fyrir okkur tvær!
Við komumst loksins til Montréal og þar voru mamma og Stefán Freyr á flugvellinum að ná í okkur! Svo eftir það er bara búið að vera smá sólbað hjá okkur og smá shopping, fórum líka á miðvikudaginn í smá rölt um miðbæinn, kíktum í China Town og fórum á rúntinn um gamla bæinn í hestakerru!
Í dag vöknuðum við svo frekar seint og fórum út á svalir í sólbað. Það var samt svo rosalega heitt að ég og Íris ákváðum að fara í smá hjólatúr og skella okkur í sund. En þegar í sundlaugina var komið var okkur sagt það að það væri skylda að vera með sundhettu í sundlauginni! Við vorum ekki lengi að snúa við og fara aftur heim! En á leiðinni heim ákváðum við að fara bara samt í sund, keyptum okkur sundhettu á staðnum og vorum ofursvalar! Skelli inn myndum seinna! haha...
Bæjó :*

miðvikudagur, júlí 06, 2005

verslunarmannahelgin nálgast!!

hæjhæj smá forvitni i gangi herna... hverjir ætla að djamma á akureyri um versló??:)
eða er eyjar málið..?
p.s svava það er bannað að vera að vinna!!! missjú;*
kv.Rakel....:)